6.9.2007 | 19:07
Er íslenskan mín ekki gjaldgeng lengur ?
Sælir netverjar.
Stjúpdóttir mín rakst á bloggið mitt á netinu. Hún hafði bara eitt um það að segja: "Svakalega skrifar þú skrítna íslensku !". Það er greinilegt að ég skrifa ekki á unglingatungumálinu og hlýtur það að vera órækt merki um að ég sé að verða gamall. Skyldu unglingarnir skilja orðið órækt? Aðal lýsingarorð nútímans virðist vera "bara eitthvað".
Ég er reyndar viss um að daglegt tungumál mitt á unglingsárunum hafi verið ansi ólíkt ritmáli foreldra minna. Okkar lýsingarorð var til dæmis "hrikalegt" sem notað var í tíma og ótíma.
En ég er reyndar viss um að pabbi skilji þessi skrif fínt. Kannski er það fjörtíu ára verk að læra íslensku almennilega?
Um bloggið
Halldór Pétursson lætur móðann mása...
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.